02/04/2026
Skálmar frá Nýjabæ verður til afnota, bæði gangmál á Mófellsstöðum í Skorradal, um 15 mínútna akstur frá Borgarnesi.
Verð 75.000 kr + vsk = 93.000 kr.
Nánari uppl. veitir Jökull Helgason í s: 864-6006 og á netf: [email protected] .
Sjá einnig facebook síðu Skálmars www.facebook.com/Nyjibaer .
Töltið er rúmt, skrefmikið með miklu framgripi, brokkið skrefmikið, skeiðið öruggt og skrefmikið, viljinn ásækinn og þjáll og góður höfuðburður og mikill fótaburður, eins og segir í umsögn um hestinn.
Frjósemi hans er alveg úrval og eftirtektarvert hve framfalleg afkvæmi hans eru almennt.