Bruggsmiðjan Kaldi

Bruggsmiðjan Kaldi Bruggsmiðjan Kaldi sérhæfir sig í að brugga eðal bjór, úr hreinu vatni og úrvals hráefni. Kaldi er Bruggverksmiðja sem starfrækt er á Árskógssandi.

Verslaðu Kalda beint af býli 🍻
Opið
Mán - fimmt: 09:00 - 17:00
Föst - 09:00 - 15:00 Við framleiðum hágæða bjór, þar sem eingöngu eru notuð hágæða hráefni frá Tékklandi fyrir utan okkar hreina vatn sem kemur úr lind sem er í Sólarfjalli við utanverðan Eyjafjörð. Við notum engin aukaefni, þ.e. ekki rotvarnarefni og engan viðbættan sykur. Kalda er eingöngu tappað á flöskur.

Á 20 ára afmælisári er gott að líta um öxl. Þessi mynd er síðan 2006 þegar Bruggsmiðjan var opnuð. Þá var húsnæði Bruggs...
16/06/2026

Á 20 ára afmælisári er gott að líta um öxl. Þessi mynd er síðan 2006 þegar Bruggsmiðjan var opnuð. Þá var húsnæði Bruggsmiðjunar 300m2 og bruggun, gerjun og átöppun öll í sama rýminu. Bjór tankarnir voru 7 talsins og hver um sig 2000 lítrar. Einungis var þá framleitt í flöskur og kúta og framleiðslugetan var 160.000 lítrar á ári.

Verksmiðja Bruggsmiðjunar er í dag 1000m2 og skipt í 3 álmur. Bjór tankarnir eru 17 talsins, ellefu 4000 lítra tankar og gömlu góðu 2000 lítra tankanir. Framleitt er í dósir, flöskur og á kúta og framleiðslugetan er 700.000 lítrar á ári. Nýjasta viðbótin er svo eimingartæki sem opnar dyrnar á að framleiða sterkt vín.

Það sem ekki hefur breyst er að bjórinn er bruggaður eftir tékkneskri hefð og gæði eru ávallt höfð að leiðarljósi umfram magn.

Tíminn flýgur áfram og því er gott að líta um öxl og skoða hvað hefur áunnist.

Á næstu vikum eru tvær nýjar vörur á leiðinni frá Kalda 🤩Eru þetta glænýjar vörur, nýr búningur, bjór eða eitthvað allt ...
29/05/2026

Á næstu vikum eru tvær nýjar vörur á leiðinni frá Kalda 🤩Eru þetta glænýjar vörur, nýr búningur, bjór eða eitthvað allt annað? Segðu okkar hvað þú heldur og þú gætir fengið smakk í hendurnar áður en sala hefst.🍻

Vorið er komið og grundirnar gróa. Sauðburður, golf, hlaup, kosningar. Nóg um að vera, Sumar Kaldi kominn í sölu og hann...
08/05/2026

Vorið er komið og grundirnar gróa. Sauðburður, golf, hlaup, kosningar. Nóg um að vera, Sumar Kaldi kominn í sölu og hann passar fullkomlega til að slaka á eftir amstrið🍻

Þrátt fyrir að snjóþekja sé á norðurlandi og fremur vetrarlegt sé um að litast þá kemur Sumar Kaldi á réttum tíma í vers...
05/05/2026

Þrátt fyrir að snjóþekja sé á norðurlandi og fremur vetrarlegt sé um að litast þá kemur Sumar Kaldi á réttum tíma í verslanir og hefst sala á fimmtudaginn. Sumar Kaldi er eins og sumar sólsetrið; gríðarlega fallegt og góður fyrir sálina🍻
Engin rotvarnarefni og enginn viðbættur sykur.

17/04/2026

Sigvaldi Kaldi veðurfræðingur leggur til að Ljós Kaldi verði viðurkennt sem veður hugtak og eigi við þegar úti eru hlý sunnan átt, glampandi sólskin og ekkert betra en að svolgra í sig ísköldum Kalda 🍻

Nýverið fjárfesti Bruggsmiðjan Kaldi í eimingartækjum sem nú er búið að setja upp í verksmiðjunni á Árskógssandi. Með ei...
09/04/2026

Nýverið fjárfesti Bruggsmiðjan Kaldi í eimingartækjum sem nú er búið að setja upp í verksmiðjunni á Árskógssandi. Með eimingartækjunum opnast möguleikar fyrir Bruggsmiðjuna á að framleiða sterkt vín: Vodka, Gin, Romm eða Whiskey sem dæmi.

Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvað verður framleitt en næstu mánuðir munu fara í að læra á tækin, prófa sig áfram og þróa mismunandi vökva sem á endanum mun gefa af sér nýjar vörur frá Bruggsmiðjunni.

Það er ljóst að þetta er gríðarlega spennandi fjárfesting og hver veit nema að það takist að koma með nýja vöru á þessu ári í tilefni af 20 ára afmæli Bruggsmiðjunar.

Hvað er betra en Þorra Kaldi um páska. Við eigum til afgang af Þorra Kalda og er hann fáanlegur í Bruggsmiðjunni Árskógs...
31/03/2026

Hvað er betra en Þorra Kaldi um páska. Við eigum til afgang af Þorra Kalda og er hann fáanlegur í Bruggsmiðjunni Árskógssandi á tilboði.

Kippa af flöskum á 1500kr og rúta af dósum á 2000kr🍻

Opið þriðjudag til 18:00 og Miðvikudag frá 8:00 - 18:00.

Það er alveg sama hvort úti sé norðan Kaldi, sunnan Kaldi eða stinnings Kaldi, eina sem skiptir máli er að til sé Ljós K...
18/03/2026

Það er alveg sama hvort úti sé norðan Kaldi, sunnan Kaldi eða stinnings Kaldi, eina sem skiptir máli er að til sé Ljós Kaldi í ísskápnum 🍻

Það er vonlaust að treysta á veðrið en þú getur alltaf treyst á Kalda 🍻Engin rotvarnarefni, engin viðbættur sykur. Bara ...
13/03/2026

Það er vonlaust að treysta á veðrið en þú getur alltaf treyst á Kalda 🍻Engin rotvarnarefni, engin viðbættur sykur. Bara hrein gæði 🤩

Í ár eru 20 ár síðan Bruggsmiðjan Kaldi opnaði og á þessum 20 árum hefur Kaldi ferðast víða. Syðsti viðkomustaður Kalda ...
10/03/2026

Í ár eru 20 ár síðan Bruggsmiðjan Kaldi opnaði og á þessum 20 árum hefur Kaldi ferðast víða. Syðsti viðkomustaður Kalda er þó óumdeilanlega Kalahari eyðimörkin þar sem Ljós Kaldi er reglulega á boðstólnum hjá 🍻☀️

Address

Öldugata 22
Dalvík
621

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 12:00

Telephone

+3544662505

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bruggsmiðjan Kaldi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category