Steinnes Breeding Farm

Steinnes Breeding Farm Steinnes horsebreeding farm Here we want to give and receive information about horses from Steinnes.

At the Steinnes farm we breed and sell horses for competition, breeding and riding.

⭐️Rómur frá Steinnesi - IS2026156⭐️Þessi háættaði og sérlega myndarlegi gæji er til sölu. Hann er undan gæðingnum Hróki ...
19/07/2026

⭐️Rómur frá Steinnesi - IS2026156⭐️

Þessi háættaði og sérlega myndarlegi gæji er til sölu. Hann er undan gæðingnum Hróki sem hlau 8.86 í aðaleinkunn og 9.05 í hæfileika!🌟
Og Krít frá Steinnesi sem er systir Kiljans frá Steinnesi í móðurlegg en undan gæðingnum Snillingi frá Íbishóll.
Eins og má sjá eru afargóðar ættlínur á bakvið þennan myndar gæja.

Á bakvið hann er t.d. :
Hrókur frá Skipaskaga🥇
Jarl frá Árbæjarhjáleigu 🏆
Snillingur frá Íbishóli🥇
Kolfinnur frá Kjarnholtum🏆

Upplýsingar í skilaboðum 😊

Gammur frá Steinnesi allur🤍Þá hefur Gammur okkar gengið sinn hinsta spöl. Á vordögum tók að draga af kappanum, orðinn þr...
08/07/2026

Gammur frá Steinnesi allur🤍

Þá hefur Gammur okkar gengið sinn hinsta spöl. Á vordögum tók að draga af kappanum, orðinn þrítugur.
Gammur var fyrst og fremst einstakur höfðingi, vinur og gleðigjafi. Á yngri árum var hann jafnan kallaður vorboði okkar Húnvetninga en hann og Tryggvi Björnsson fóru ófáar ferðir á kynbótabrautina eftir að hafa legið saman undir feldi yfir svartasta skammdegið.

Gammur fór á Landsmót árið 2006 þá með nýjum knapa, Helga Una var að þjálfa klárinn og enduðu þau í þriðja sæti í unglingaflokk.

Gammur og hans afkvæmi hafa skilað okkur mörgum dýrmætum stundum. Við eigum og höfum eignast mörg undan honum, það sem einkennir þau er einstakt geðslag, auðtamin með góðar grunngangtegundir og mikla mýkt á tölti.

Núna, mörgum árum og upplifunum seinna þá eru það ekki hans afrek sem að standa upp úr heldur afkomendur hans og sú gleði sem hann virðist skila áfram, hvort heldur sem litið er til áhugamennsku og yndisauka eða í keppni og ræktun á stóra sviðinu.

Þó nokkrar Gammsdætur eru farnar að skila eftirtektarverðum afkvæmum. Eftirfarandi koma upp í hugan:
Ólga frá Steinnesi. Sonur hennar Drangur frá Steinnesi sigraði flokk 7.vetra stóðhesta á Landsmótinu í Reykjavík 2024. Dótturdóttir hennar Óskastund frá Steinnesi fór fyrir Íslands hönd á HM í fyrra, varð þar heimsmeistari í flokki 5. vetra hryssna með aðaleinkunn upp á 8.65 og hæfileika 8.85.
Sunna frá Steinnesi, hennar afkvæmi sem fyrst ber að nefna er Kiljansdóttirin Telma frá Steinnesi en hún hlaut heiðursverðlaun 2025. Önnur dóttir Sunnu sem er eftirtektarverð er Skýsdóttirin Selma frá Fákshólum en hún er sem stendur að keppa í flokki 6. vetra hryssna á LM.
Katla frá Steinnesi, hún hlaut heiðursverðlaun 2023. Hennar afkvæmi sem skara hvað mest fram úr eru systkinin Röðull og Sunna frá Haukagili en þau hafa riðið mörg A-úrslitin í tölti, hvort sem er á LM eða Íslandsmótum, setin af ofurparinu Flosa og Brynju. Einnig hefur Goðasteinn frá Haukagili verið sterkur á keppnisvellinum en hann keppti á HM fyrir Íslands hönd. Hekla frá Steinnesi, dóttir Kötlu var valin keppnishestur Svíþjóðar 2024. Skerpla frá Haukagili er sem stendur í 6v. flokki hryssna á LM.
Hrafnhetta frá Steinnesi, hefur verið öflug hryssa í ræktun hjá fjölskyldunni í Vesturkoti, þrjár dætur hennar hafa hlotið fyrstu verðlaun, þar ber hæst að nefna alhliðahryssuna Ronju frá Vesturkoti sem á ófáa sprettina hvort sem er á beinni braut eða hringvelli.
Díva frá Steinnesi, þar er dóttir hennar Dögun frá Króksstöðum fyrst á blað, er sem stendur að keppa á LM í flokki 6 vetra hryssna.
Kara frá Grafarkoti, hefur verið að skila úrvals hrossum hjá þeim Indriða og Herdísi, þar ber að nefna Kiljansdóttirina Eind frá Grafarkoti, hún hlaut hæsta 8.69 í aðaleinkunn, 8.85 fyrir hæfileika sem skilaði henni á HM í Sviss á síðasta ári sem hluti af íslenska landsliðinu.
Birta frá Efri-Fitjum, hefur skilað virkilega öflugum hrossum, hvort heldur sem er í keppni eða á kynbótabraut. Fimm afkvæmi hafa hlotið fyrstu verðlaun.

Ófáir synir hans hafa rennt sér nokkrar ferðir á vellina með góðum árangri, þar fer fremstur Hrafnfaxi frá Skeggstöðum sem var með öflugri slaktauma tölturum landsins um tíma, var í landsliðshópi Íslands. Garpur frá Hvoli gerði það einnig gott sem og Ljósvaki frá Steinnesi. Máni frá Galtanesi og Linda Rún voru einnig sterkt par.

Minnast skal á Bárð frá Melabergi, en hann er undan Gammsdótturinni Skrítlu frá Grímstungu. Bárður og knapi hans Jóhanna Margrét slógu eftirminnilega í gegn trekk í trekk hérlendis og fór svo á stóra sviðið, Heimsmeistaramót þar sem hann varð heimsmeistari í tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum en rétt missti af gulli í fjórgangi.

Þá eru ótalin öll þau afkvæmi sem hafa glatt unga sem aldna sem fjölskyldu og útreiða hross vítt og breytt um heiminn.

Myndir eftir Henk og Gígja D. Einarsdóttir

🏡 Need a place to stay for Landsmót? 🐎Are you coming to Landsmót next summer and looking for a cozy place to stay?We hav...
23/04/2026

🏡 Need a place to stay for Landsmót? 🐎

Are you coming to Landsmót next summer and looking for a cozy place to stay?

We have a lovely mini cabin in the quiet Icelandic countryside that we would love to rent out to fellow horse lovers attending the event. It’s a peaceful place to relax after a long day at the arena.

📍 Located about 100 km from the Landsmót at Hólar
🌿 Quiet countryside setting with beautiful surroundings
👥 Perfect for 2 guests, but can accommodate up to 4
💶 220 EUR per night

If this sounds like a good fit for your Landsmót trip, send us a message for more information or to reserve your stay. We would love to host fellow horse enthusiasts!

Please feel free to share with friends who might be attending Landsmót 🐎

Rustic Cabin with a View

Address

Steinnesvegur
Þingeyrar
541

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Steinnes Breeding Farm posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Steinnes Breeding Farm:

Shortcuts

Share

Category