Fincafresh

Fincafresh Lífrænt ræktaðir, árstíðabundnir ávextir beint frá smábændum Suður-Spánar án nokkurra milliliða.

Við bjóðum upp á vikulega, hálfsmánaðarlega og mánaðarlega áskrift í þremur stærðum ásamt stökum ávaxtasendingum og gómsætum viðbótarvörum 💚 Hugmyndin á þessu verkefni kviknaði þegar að Spánverjinn Borja López Laguna sá að Íslendingar borða sömu ávextina allt árið um kring. „Ef þú myndir reyna rukka mömmu mína fyrir 8 vikna gamla þurra appelsínu myndi hún sennilega grýta henni í þig til baka“ sagði Borja, en hann er vanur að borða einungis það sem er í uppskeru hverju sinni.

Nýir eigendur taka við FincafreshKæru vinir.Eftir tæplega fjögur ár af blóð, svita, tárum og mjög, mjög, mjög mörgum ávö...
13/05/2026

Nýir eigendur taka við Fincafresh

Kæru vinir.

Eftir tæplega fjögur ár af blóð, svita, tárum og mjög, mjög, mjög mörgum ávöxtum höfum við Bessi og Bor ákveðið að segja staðar numið og afhenda öðrum keflið. Það sem byrjaði sem lítið samfélagsverkefni um að bjóða nágrönnum okkar og nærsveitungum ferska árstíðabundna ávexti hefur hefur heldur betur undið upp á sig og erum við með hundruði vikulega viðskiptavina nær alls staðar af á landinu í dag.

Við erum stoltir af því sem við afrekuðum og bjuggum til. Fincafresh er fallegt samfélag einstaklinga og fyrirtækja sem vilja aðeins það besta.

Á tímamótum sem þessum lítum við glaðir um öxl. Þetta hefur verið í senn krefjandi en einstaklega skemmtilegur – og sérstaklega bragðgóður – tími! En allt tekur senn enda, og okkur hlakkar til að vera nýjum eigendum innan handar næstu vikur og mánuði.

Okkur langar að kynna ykkur fyrir nýjum eigendum Fincafresh. Hjónin Elís Orri og Sigrún tóku við keflinu frá og með síðustu mánaðamótum. Markmið þeirra er einfalt – að gera góða upplifun enn betri. Við höfum mikla trú á þeim og þeirra hugmyndum, þau koma inn af fítonskrafti og við erum spenntir fyrir því sem koma skal. Áfram verður verslað við sömu smábændur og reksturinn breytist því ekki neitt – en reynt verður að bæta upplifun okkar viðskiptavina og fjölga öðrum spennandi valkostum til viðbótar við ávextina.

Við þökkum kærlega fyrir viðskiptin, vináttuna og samfylgdina sl. ár og hlökkum til að styðja við Fincafresh áfram – en núna í nýju hlutverk sem dyggir viðskiptavinir!

Bessi og Bor

Það fer að verða allra síðasti séns að tryggja sér gómsætustu appelsínur og nísperur landsins 🤤🍊🍐🧡
04/05/2026

Það fer að verða allra síðasti séns að tryggja sér gómsætustu appelsínur og nísperur landsins 🤤🍊🍐🧡

Allskonar í Fincafresh í dag! 🥖🥖🥖Opið: 11-17 Böggvisbrauð
30/04/2026

Allskonar í Fincafresh í dag! 🥖🥖🥖
Opið: 11-17
Böggvisbrauð

🌸 Sumaropnun á Akureyri í dag – Sumardagurinn fyrsti! 🌸Við opnum dyrnar kl. 11:00–17:00 og bjóðum upp á alls konar smakk...
23/04/2026

🌸 Sumaropnun á Akureyri í dag – Sumardagurinn fyrsti! 🌸

Við opnum dyrnar kl. 11:00–17:00 og bjóðum upp á alls konar smakk 🍴✨

📍 Njarðarnes 12, 603 Akureyri

Kíktu við, smakkaðu og njóttu dagsins með okkur – hlökkum til að sjá þig!

Hola amigos! 👋Þú getur pantað á 👉 www.fincafresh.is 🗓Afhending í viku 17 – dagana 23.-24. AprílNísperur í Delúx & PERUR ...
16/04/2026

Hola amigos! 👋

Þú getur pantað á 👉 www.fincafresh.is
🗓Afhending í viku 17 – dagana 23.-24. Apríl

Nísperur í Delúx & PERUR í öllum kössum! 🌾
Þær þurfa að linast aðeins og verða eins og djúsglas á bragðið! Hægt er að láta seinana spíra eins og avókadó stein. Flott lítið tré kemur úr fræinu sem hægt er að nota sem inni plöntu!

Í næsta kassa:📦

Pera Conferencia - Nýtt! 🍐
Naranja Navelina Mesa - Með laufum🍊
Manzana Rojo - Rautt epli🍎
Avókado Fuerte - Nýtt!🥑
Pomelo🍊
Sítróna🍋

🎁Delúx-kassinn (aukalega fyrir sælkera!):
Kiwi 🥝
Maracuya (Ástaraldin)🥰
Nísperur

⚠ATH!
Ertu að fara erlendis og vilt sleppa úr sendingu?
Sendu okkur einfaldlega línu!
📩[email protected]
| ☎️612-1126 (kl. 9–17)

10/04/2026

Para la gente que no habla Islandés😅

Eftir mikið af áskorunum um að þýða þetta videó fyrir fólk út á spáni 🇪🇸

08/04/2026

08/04/2026

Fincafresh
Þar sem ávextir eru teknir alvarlega…
fincafresh.is

Hola amigos!Pantaðu þinn ávaxtrakassa núna á  www.fincafresh.is Afhending í viku 16 – dagana 9. - 10. Apríl💥💥Það er enþá...
05/04/2026

Hola amigos!
Pantaðu þinn ávaxtrakassa núna á www.fincafresh.is
Afhending í viku 16 – dagana 9. - 10. Apríl

💥💥Það er enþá 15% Delúx afsláttur !💥💥

👉 Og já – áskrifendur af Finca Delúx fá alltaf 15% afslátt.

🌟Í næsta kassa:
Naranja Navelina Mesa - Með laufum🍊
Mandarina Orri - Með laufum🍊
Manzana Rojo - Rautt epli🍎
Avókado Fuerte🥑
Pomelo🍊

🎁Delúx-kassinn (aukalega fyrir sælkera!):
Kiwi🥝
Maracuya (Ástaraldin)🥰
Nísperur!✴️

ATH!
Ertu að fara erlendis og vilt sleppa úr sendingu?
Sendu okkur einfaldlega línu!
[email protected]
| 612-1126 (kl. 9–17)

PÁSKAOPNUN 🐣Endilega kíkiði á okkur! ✌🥝🍎🍊🍋🕒 Þrið: 11 – 17🕒 Mið: 11 – 17📍 Njarðarnes 12, 603 Akureyri
31/03/2026

PÁSKAOPNUN 🐣

Endilega kíkiði á okkur! ✌🥝🍎🍊🍋

🕒 Þrið: 11 – 17
🕒 Mið: 11 – 17

📍 Njarðarnes 12, 603 Akureyri

Address

Njarðarnes 12
Akureyri
603

Opening Hours

Wednesday 11:00 - 17:00
Thursday 11:00 - 17:00
Friday 11:00 - 17:00

Telephone

+3546121126

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fincafresh posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share