Samherji

Samherji Samherji, founded in 1983, is a leading seafood company in Iceland and Europe. Operating a fleet of fishing vessels, white fish factories and fish farming.

Samherji also runs sales and marketing operations.

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐSamherji sendir starfsfólki, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu kveðjur á lýðveldisdaginn, 17....
17/06/2026

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ

Samherji sendir starfsfólki, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu kveðjur á lýðveldisdaginn, 17. júní.

Afar fátítt er að allir bolfisktogarar félagsins séu í landi á sama deginum, nema á lögbundnum frídögum.

Það gerðist þó í dag, Björg EA 7 kom til löndunar á Akureyri í morgun og var strax hafist handa við löndun.

Landað var úr Björgúlfi EA 312 í gær.

Fyrir voru á Akureyri Harðbakur EA 3 og í flotkví Slippsins er Kaldbakur EA 1.

Gleðilega þjóðhátíð !

"Slippurinn hefur alla tíð veitt okkur frábæra þjónustu og sömu sögu er að segja um aðra verktaka sem koma að verkefni s...
16/06/2026

"Slippurinn hefur alla tíð veitt okkur frábæra þjónustu og sömu sögu er að segja um aðra verktaka sem koma að verkefni sem þessu, enda er þetta töluverð teymisvinna. Hérna á Akureyri er víðtæk þekking á þjónustu við skipaflota Samherja, sem er að sjálfsögðu afar mikilvægt og áhöfn Kaldbaks kemur að þessu öllu saman með margvíslegum hætti," segir Jóhann Freyr Jónsson á útgerðarsviði Samherja.

Smelltu á fréttina til að lesa nánar

Togarinn Kaldbakur EA 1, bolfisktogari Samherja, hefur verið í flotkví Slippsins á Akureyri undanfarna daga.

07/06/2026

Samherji sendir öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðju í tilefni sjómannadagsins í dag.

Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á Íslandi síðan 1938 til að heiðra íslenska sjómenn og mikilvægi sjómennskunnar fyrir þjóðina.

Gott gengi í sjávarútvegi hefur verið samofið efnahagslegri velsæld þjóðarinnar. Þar gegna sjómennirnir lykilhlutverki enda væri engin útgerð starfandi án þeirra.

Meðfylgjandi er myndskeið af skipverjum á Björgu EA 7, ísfisktogara Samherja, sem var útbúið í tilefni dagsins.

Gleðilegan sjómannadag!

Gunnar Örn Sigfússon kokkur á togara Samherja, Björgu EA 7, hefur verið viðloðandi sjávarútveg svo að segja allan sinn s...
05/06/2026

Gunnar Örn Sigfússon kokkur á togara Samherja, Björgu EA 7, hefur verið viðloðandi sjávarútveg svo að segja allan sinn starfsferil. Hann hefur verið á skipum Samherja í s*xtán ár.

Tvöfaldar áhafnir eru á skipum Samherja og var Gunnar Örn í landi í síðasta túr og fer væntanlega á sjóinn aftur í júlí. Hann er kokkur, byrjaði sl. áramót:

„ Bara mjög vel en ég viðurkenni fúslega að það var talsvert stress í byrjun en ég held að þetta sé allt komið. Strákarnir tóku mér líka afskaplega vel í þessu nýja hlutverki og það var mikilvægt."

Smelltu á fréttina til að lesa viðtalið

Gunnar Örn Sigfússon kokkur á togara Samherja, Björgu EA 7, hefur verið viðloðandi sjávarútveg svo að segja allan sinn starfsferil. Hann hefur verið á skip

Það er óhætt að mæla með þessari girnilegu uppskrift eftir Lindu Benediktsdóttur þar sem hún notar „Besta bitann af þors...
03/06/2026

Það er óhætt að mæla með þessari girnilegu uppskrift eftir Lindu Benediktsdóttur þar sem hún notar „Besta bitann af þorskinum.“ Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökku brauðraspi.

Það er engin tilviljun að þorskurinn er ítrekað valinn af fremstu matreiðslumönnum landsins.

Samheldin áhöfn – Fínt skip - „Við fiskuðum vel í þessum túr og allt gekk eins og í sögu,“ segir Lýður Valgeir Jóhanness...
29/05/2026

Samheldin áhöfn – Fínt skip -

„Við fiskuðum vel í þessum túr og allt gekk eins og í sögu,“ segir Lýður Valgeir Jóhannesson yfirstýrimaður á Harðbaki EA 3, togara Samherja.

Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður á Morgunblaðinu var á Togarabryggjunni á Akureyri er Harðbakur EA 3 lagðist að bryggju og tók viðtal við Lýð. „Þetta er fínt sjóskip, þægilegt og nett. Það fer vel með mannskapinn.“

Smelltu á myndina til að lesa nánar skemmtilegt viðtal, skemmtilegar myndir fylgja.

Heimir Tómasson vélstjóri lætur af störfum hjá Samherja eftir rúm 40 árHeimir hefur starfað fyrir eða með Vilhelm og Bal...
28/05/2026

Heimir Tómasson vélstjóri lætur af störfum hjá Samherja eftir rúm 40 ár

Heimir hefur starfað fyrir eða með Vilhelm og Baldvin Þorsteinssonum og afkomendum þeirra á sjó og landi nánast samfellt frá 1964. Fyrst hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, nokkur ár á Súlunni EA og síðan samfellt hjá ÚA og Samherja frá 1975, þar af síðustu 25 árin í landi.

„Þetta hafa verið góð ár og samstarfið alla tíð mjög gott. Breytingarnar frá því að ég byrjaði sem vélstjóri á gufutogurum ÚA og síðan á Harðbak EA, Akureyrinni EA og Baldvin Þorsteinssyni EA hafa verið með ólíkindum. Hvort sem það snýr að vélbúnaði, tölvutækni eða veiðarfærum,“ segir Heimir og bætir við:

„Ég segi hiklaust að Samherji sé í fararbroddi á mörgum sviðum. Þótt ég láti af störfum á þessum tímapunkti, enda að verða 79 ára, kem ég örugglega til með að kíkja í kaffi af og til. Hérna hefur skapast vinátta sem er mér mikils virði og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í margvíslegum verkefnum,“ segir Heimir Tómasson.

Efnt var til kveðjusamsætis á verkstæði Samherja í gær en síðasti formlegi starfsdagurinn er í dag.

Kristján Vilhelmsson og Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri Samherja þökkuðu Heimi fyrir langt og farsælt samstarf.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá gærdeginum og einnig mynd af fyrstu áhöfn Akureyrinnar EA en Heimir var einmitt í þeirri áhöfn.

Samherji og atNorth styðja við stofnun ferðasjóðs fyrir börn í íþróttum á Eyjafjarðarsvæðinu.Samherji og atNorth styðja ...
14/05/2026

Samherji og atNorth styðja við stofnun ferðasjóðs fyrir börn í íþróttum á Eyjafjarðarsvæðinu.

Samherji og atNorth styðja við stofnun nýs ferðasjóðs til að auðvelda börnum á Eyjafjarðarsvæðinu þátttöku í íþróttastarfi óháð efnahag og búsetu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íþróttabandalag Akureyrar og svæðisfulltrúa ÍSÍ á Norðurlandi eystra.

Ferðasjóðurinn mun styðja við fjölskyldur til að standa straum af ferðakostnaði sem fylgir þátttöku í íþróttamótum og æfingum og stuðla þannig að auknum og jöfnum tækifærum barna til íþróttaiðkunar.

Stofnframlag sjóðsins verður í formi tíu milljóna króna styrks frá Samherja og atNorth, sem er stærsta gagnaversfyrirtæki landsins. Styrkurinn var afhentur á Akureyri í gær þegar Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, Heimir Örn Árnason, stjórnarmaður í Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ) og Jóna Jónsdóttir, formaður Íþróttabandalags Akureyrar, gengu frá samkomulagi um stofnun ferðasjóðsins.

Mikilvægt framfaraskref fyrir börn og unglinga í Eyjafirði

Heimir Örn Árnason, segir stofnun sjóðsins mikilvægt framfaraskref fyrir börn og unglinga á Eyjafjarðarsvæðinu.

„Það er afar mikilvægt að stofna slíkan sjóð sem gefur enn fleiri börnum og unglingum möguleika á að mæta á öll mót og taka þannig fullan þátt í íþróttastarfinu,“ segir Heimir Örn.

Unnið er að gerð úthlutunar- og verklagsreglna fyrir hinn nýstofnaða ferðasjóð. Stefnt er að því að honum verði formlega hleypt af stokkunum í haust og að úthlutun geti hafist samtímis. Verður það kynnt betur um leið og eiginleg starfsemi sjóðsins hefst.

Samfélagið þarf að standa vörð um íþróttastarf barna

Forsvarsmenn Samherja og atNorth segja mikilvægt að samfélagið standi vörð um og styðji við íþróttastarf barna.

„Foreldrar barna í Eyjafirði eiga ekki að þurfa að hætta við þátttöku í mótum eða leikjum vegna fjarlægðar og kostnaðar. Með stofnun sjóðsins viljum við stuðla að því börn í Eyjafirði eigi þess kost að mæta á mót og keppa í sinni íþrótt. Við viljum leggja okkar af mörkum til þess að sem flest börn geti tekið þátt í íþróttum og notið þeirra tækifæra sem íþróttastarf skapar. Við vonum jafnframt að fleiri fyrirtæki sjái sér fært að styðja við þetta mikilvæga samfélagslega verkefni,“ segja Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja og Eyjólfur Magnús Kristinsson forstjóri atNorth.

SYSTUR LÁTA AF STÖRFUM EFTIR SAMTALS 78 ÁR Systurnar Lilja og Ragna Finnsdætur láta af störfum eftir að hafa starfað við...
08/05/2026

SYSTUR LÁTA AF STÖRFUM EFTIR SAMTALS 78 ÁR

Systurnar Lilja og Ragna Finnsdætur láta af störfum eftir að hafa starfað við fiskvinnslu á Fiskitanga á Akureyri í samtals 78 ár. Lilja í 26 ár og Ragna í 52 ár.

Lilja lét formlega af störfum í dag en Ragna á morgun. Þær voru kvaddar í dag af samstarfsfólki.

„ Veistu það, ég hlakka mikið til framtíðarinnar. Hérna hefur mér alla tíð liðið vel, kynnst stórum hópi frábærs samstarfsfólks og vinnuveitenda. Á morgun höldum við hjónin til Króatíu og svo er bara að njóta lífsins. Það segir sig auðvitað sjálft að mér hefur liðið vel hérna, fyrst ég hef verið hérna rúman aldarfjórðung. Hjá mér hefur alltaf verið tilhlökkun að mæta til vinnu, sem segir manni að þetta hefur verið góður tími,“ sagði Lilja að loknum síðasta starfsdeginum.

Eins og fyrr segir kveður Ragna ÚA á morgun.

„ Já, ég vinn einum degi lengur en Lilja. Þetta eru orðin 52 ár og mann óraði auðvitað ekki fyrir því í upphafi en svona er nú lífið. Samherji er einstakur vinnuveitandi og starfsandinn á vinnustaðnum gerist vart betri. Hérna hefur skapast vinátta, sem ég er þakklát fyrir. Ég kveð Samherja og samstarfsfólkið með söknuði og mun örugglega kíkka í kaffi af og til.“

Vélstjórar framtíðarinnar: Vélstjórnarnemar við Verkmenntaskólann á Akureyri kynntu sér starfsemi vinnsluhúss ÚA á Akure...
08/05/2026

Vélstjórar framtíðarinnar:

Vélstjórnarnemar við Verkmenntaskólann á Akureyri kynntu sér starfsemi vinnsluhúss ÚA á Akureyri en vélstjóranemendur við skólann hafa reglulega heimsótt starfsstöðvar Samherja til að fræðast um ýmsa innviði starfseminnar er tengjast náminu.

Vélstjórarnir Jakob Björnsson og Ingi L. Vilbergsson tóku á móti hópnum en fjölmargir öflugir vélstjórar starfa hjá Samherja, bæði til sjós og lands.

Vélstjórnarnám skiptist í meginatriðum í s*x námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig rétt til að fá útgefið skírteini til starfa sem vélstjóri.

Nemendafélag vélstjóranema við VMA heitir því skemmtilega nafni Smyrillinn og þökum við nemendunum kærlega fyrir komuna.

Address

Glerárgata 30
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samherji posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Samherji:

Share