20/06/2026
Adrían will serve mares by hand at Sunnuhvoll in the south (near Hveragerði), before and after the Landsmót. See the shared post for contact information.
Kæru hryssueigendur og velunnarar Adríans.
Við höfum tekið þá erfiðu ákvörðun að velja fremur að Adrían komi fram á Landsmóti 2026, frekar en að hafa hann í sæðingum í sumar, eins og til stóð. Í staðin býðst hryssueigendum að halda undir hestinn á Sunnuhvoli – sjá nánar neðst í færslunni.
Nokkrar línur til upplýsinga fyrir fylgjendur hestsins og þá sem málið varðar.
Þegar við tókum ákvörðun um að setja hann í sæðingar lágu tvær meginástæður að baki. Annarsvegar töldum við ljóst að það yrði mjög mikil ásókn í hann því hann er frábær kynbótahestur (tölfræðin og afkvæmin tala fyrir sig). Hinsvegar héldum við að gömul meiðsli á fæti myndu standa í vegi fyrir því að hægt væri að beita honum til hámarksafkasta, sem vóg þyngst.
Við vissum að það væri möguleiki á að Adrían gæti hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á LM í ár,
þrátt fyrir að hafa á bakvið sig
einungis rúmlega
125 afkvæmi á tamningaaldri,
og vildum að hesturinn væri a.m.k. í ágætu trimmi – því leituðum við til Glódísar Rúnar Sigurðardóttur um að vera með hestinn.
Adrían og Glódís smullu saman eins og eftir hefur verið tekið og á dögunum tryggðu þau sér farmiða á LM í B-flokk gæðinga. Vonir okkar standa til að Adrían og Glódís standi sig vel á LM ogþar fái Adrían að sýna sína bestu kosti.
Af þessum ástæðum klárar Adrían ekki áður auglýst sæðingatímabil í Reykjadal, þar sem hann hefur boðist í vor. Við kunnum þeim Guðríði og Jóni bestu þakkir fyrir góð samskipti og fagleg vinnubrögð.
Við viljum biðja þá hryssueigendur sem voru búnir að bóka undir klárinn afsökunar á þeim óþægindum sem af þessu kunna að hljótast og bjóðum þeim að hafa samband við okkur hér í gegnum síðuna - við finnum góða lausn sem hentar.
Fyrir og eftir LM verður hesturinn í húsnotkun á Sunnuhvoli og er verð fyrir fengna hryssu kr. 275.000 með öllu og þ.m.t. vsk. (einn sonar innifalinn).
Pantanir og nánari upplýsingar:
Glódís, s. 8972818 / [email protected]
Ræktunarkveðjur góðar,
Siggi Agustsson
Sigurður E. Levy
Brynjolfur Stefansson