22/12/2025
Minnum á vörurnar okkar í Ljómalind, lambalundir og saltað hrossakjöt ásamt öllu því góðgæti sem bændur bjóða til sölu þar.
Nýtt frá Dalahvítlaukur: hvítlauks "confit" og hvítlauks flögusalt með blóðbergi.
Grafinn lax og graflaxsósa frá Skagafiskur, geitastubbar frá Háafell - Geitfjársetur / Goatfarm, lambalundir frá Sláturhús Vesturlands, hátíðar bláberjasulta frá Rjómabúið Erpsstaðir, jólakandís frá Kandís, jólasúkkulaði frá Útúrkú og jólamöndlur frá Dóra á Bergi.