31/05/2026
Hér kom foreldrafélag leikskólans Krílakots á Dalvík í gær. Veðrið var skítköld norðangjóla svo þau röðuðu veitingunum sem þau komu með handa börnum og fullorðnum á kör í fjárhúshlöðunni.
Algjörar neglur sem sáu um skipulagið.
Kristrún Birna kom með hvolpana sína 10, við höfðum geymt 3 lömb inni til að marka og merkja og svo voru ungarnir þarna í búrinu alsælir ef einhver splæsti á þá kanilsnúð.
Kiðlingarnir þáðu knús og lömbin sem fá ábót á pela voru alsæl með auka"bitann" sinn.
Síðan fóru allir í fjós og enduðu á leiksvæðinu.
Það var ágætt að hafa nóg bílastæði enda sennilega rúmlega 100 manns.
Þá er þessum skóla/leikskóla heimsóknum lokið þetta árið. Sennilega rétt um 200 manns í allt sem hafa komið.
Dásamlegt en maður gerir ekkert annað á meðan!!