23/07/2026
Þetta tókst🏆
Kjuði okkar hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á landsmótinu hér heima á Hólum. Gaman er að segja frá því að 14 af 15 sýndum afkvæmum hans hafa verið tamin, þjálfuð og/eða sýnd af þeim systrum Ingunni og Björgu✨ Takk þið sem hvöttuð og hjálpuðu okkur að ná þessum merka áfanga🙏🏻
Leyfum afkvæmaorðunum að fylgja með:
Kjuði frá Dýrfinnustöðum gefur hross í rúmu meðallagi að stærð. Höfuð er svipgott, hálsinn reistur, hátt settur og vel aðgreindur frá bógum. Bak og lend er yfirleitt sterklegt og afkvæmin eru jafnvægisgóð. Fætur eru grannir en réttleiki góður, hófar mættu vera efnistraustari og hvelfdari. Prúðleiki er í tæpu meðallagi. Kjuði gefur sporlétt alhliðageng hross með eðlisfótaburð, þau eru takthrein og skrefmikil á tölti og brokki og einkar jafnvægisgóð á skeiði. Kjuði gefur viljug og vakandi hross með alhliða gæðingskosti, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og sjöunda sætið.
📸