06/05/2026
Kíkið á fréttirnar okkar frá viðburðinum í Sjávarklasanum í Reykjavík í síðustu viku 🌱
Icelandic above / English below
Gró: samfélagsrými innan Ísponica, hannað af Dorotheu Olesen og Herdísi Örnu Hallgrímsdóttur, á Blue Open House 2026
Að sækja Blue Open House í Sávarklasanum var mjög hvetjandi þar sem við fengum tækifæri til þess að kynna verkefnið okkar, Gró, ásamt því að tengjast fólkinu sem sótti viðburðinn. Gró er kaffihús og samfélagslegsrými innan Ísponica þar sem framleiðsla og samfélag sameinast til þess að veita innsýn og aðgang að ferskum staðbundnum mat og samfélagsrými fyrir heimamenn og gesti allt árið um kring. Við gáfum gestum innsýn í framtíðarsýn Gró og Ísponica tengdri framleiðslu og samfélagsrýminu í gamla Frystihúsinu á Hofsósi. Við buðum upp á sýnishorn af kaffi frá KaffiKorg á Sauðárkróki og radísuspírum líkt og þær sem eru ræktaðar hjá Ísponica. Við kynntum hvernig verkefnið fléttar saman sjálfbærni, hringrásarkerfi, hönnun, nýsköpun og skapar tengingu milli nærsamfélags og staðbundinnar framleiðslu í dreifbýli eins og á Hofsósi.
Við erum mjög þakklátar fyrir að hafa fengið tækifæri til að sækja Blue Open House 2026 fyrir hönd Ísponica þar sem viðburðurinn er mikilvægur vettvangur fyrir frumkvöðla til að tengjast og kynna nýsköpunarhugmyndir.
xx
Herdís og Dorothea
——
Gró: a community space within Ísponica, by Dorothea Olesen & Herdís Arna Hallgrímsdóttir, at Blue Open House 2026
Being able to attend Blue Open House at the Iceland Ocean Cluster in Reykjavík was very inspiring as it gave us a chance to introduce our project, Gró, as well as connect with the people attending the event.
We gave guests a glimpse into Gró and Ísponica’s future vision for production and communal space in the old fish factory in Hofsós. Gró is a café and a communal space within Ísponica where local production, and community combine to provide all-year-round access to fresh food and communal hub for locals and visitors. We offered samples of locally roasted coffee from KaffiKorg in Sauðárkrókur and sprouts such as those grown at Ísponica. We displayed how sustainability, circular systems, design, innovation and community are going to intertwine and create a synergistic relationship between community and local production in rural areas such as Hofsós.
We are very grateful for getting the chance to attend Blue Open House 2026 as it is a valuable platform for startups to connect and promote innovative ideas.
xx
Herdís og Dorothea