17/04/2023
Elsku frábæru viðskiptavinir og velunnarar.
Þetta hefur verið meiriháttar ævintýri og okkur langar til að þakka ykkur fyrir frábærar móttökur og viðskipti síðustu 4 ár. Þetta hefur verið bæði gaman og gefandi.
Við þurfum því miður að loka fallega litla veitingastaðnum okkar MR.JOY.
Leigusamngurinn okkar var á enda og við af persónulegum ástæðum ekki alveg með réttu orkuna eða tímasetninguna til að opna á öðrum stað, sem okkur finnst þó að ætti að gerast.
Fallegt og fullmótað fyrirtæki, skemmtilegt tækfæri til að vinna í eigin rekstri.
Frábært fyrir duglega einstaklinga sem hafa áhuga á lífrænu, heilsusamlegu grænmetis fæði og lífstíl. Þetta er ástríðuverkefni og í afar takmarkaðan tíma opið fyrir tilboðum í MR.JOY og allt sem að honum fylgir til flutnings í nýtt húsnæði.
Endilega hafið samband fyrir frekari upplýsingar um fyrirtækið hérna: [email protected]
MR.JOY fjölskyldan