10/09/2026
Escobarbomban verður gul! 💛
Dagana 10 – 20. september verður Escobarbomban framreidd með gulri vanillusósu og öll sala af henni rennur óskipt til Guls september.
Gulur september er mikilvægt og verðugt átak sem okkur hefur lengi langað að leggja lið með þeim hætti sem við getum. Við munum seint fara að safna áheitum og hlaupa maraþon, en þetta getum við gert :)
Því miður falla allt of margir fyrir eigin hendi og flest eigum við einhvern nákominn sem fór allt of snemma. Við misstum einn úr okkar hópi fyrir tæpu ári og Escobarbomban var uppáhaldskleinuhringurinn hans.
Athugið að þetta gildir ekki á Wolt, svo kíkið við hjá okkur í Núpalind 1 💛