****English below****
Sláturhúsið Seglbúðum
Kjötið okkar fæst selt beint frá okkur. Sláturhúsið Seglbúðum opnaði haustið 2014 fyrir sauðfjárslátrun og kjötvinnslu. Seglbúðalamb er hangið í 3-4 daga í réttu hitastigi, skv. ráðleggingum Matís ohf, sem skilar sér í aukinni meyrnun án kostnaðar rýrnunar. Dýravelferð er einn af mikilvægustu málefnum sláturhúsins. Flutningur sláturgripa er takmarkaður
en allt okkar kjöt er úr héraði. Engin þrengsli eru á sláturgripum og fá þeir ávallt gott og ferskt loft. Sláturferlið er hægt sem minnkar hættu á stressi í sláturgripum. Minna kolefnisfótspor er okkur ofarlega í huga. Heimarafstöð okkar knýr starfsemina áfram og handafl ásamt einni talíu knýr sláturlínuna áfram. Styttri flutningur sláturgripa stuðlar að minni mengun.
Öll störf í húsinu eru unnin af heimamönnum, þ.e. af fjölskyldunni í Seglbúðum og sauðfjárbændum sem eru reynslumiklir og góðir slátrarar. Skapar því fyrirtækið störf og auknar tekjur fyrir fólk úr heimabyggð.
_______________________________________
Veiði í Grenlæk
Svæði 5 í Grenlæk liggur í gegnum Seglbúðir. Til að kaupa veiðileyfi vinsamlegast hafið samband í tölvupósti
_______________________________________
Gisting í Gistihúsinu Seglbúðum. Utan veiðitíma er veiðhúsið Seglbúðum leigt út til gistingar. Vinsamlegast bókið á Airbnb eða sendið okkur tölvupóst.
****
Local meat production
Additionally to the conventional sheep farming, the first and only small-scale local slaughterhouse was opened in Seglbúðir in 2014. Fly fishing in Grenlækur
The river Grenlækur runs through the land of Seglbúðir, where fly-fishing becomes an experience beyond the ordinary due to the unique character of the landscape. Guesthouse
Accommodation is offered in the 4-room exclusive lodge in Seglbúðir. Book now: https://www.airbnb.com/rooms/10259521?guests=8&s=fgL8oNcy
Please visit www.seglbudir.com for further information about fly fishing, accommodation and/or meat-products.