08/09/2026
Vildarkerfi Takk hefur nú tekið breytingum sem gefa vildarvinum fleiri tækifæri til að fá meira til baka þegar þeir versla í Bónus og Hagkaup.
Breytingarnar eru liður í áframhaldandi þróun Takk og byggja meðal annars á reynslu fyrstu mánaða, endurgjöf frá viðskiptavinum og auknum áhuga birgja á samstarfi við vildarkerfið.
Með breytingunum fjölgar bæði þeim vörum og vöruflokkum sem gefa Takk krónur.
Í Hagkaup eru nú fjölmargir vöruflokkar með fasta söfnun, meðal annars snyrtivörur, vítamín og fæðubótarefni og ýmsir flokkar sérvöru, líkt og leikföng, fatnaður og skór og búsáhöld. Samhliða hafa ný Topp tilboð verið kynnt í bæði Bónus og Hagkaup sem gefa hæstu söfnun hverju sinni.
Nánar má lesa um breytingarnar og þróun vildarkerfisins hér:
Vildarkerfi Takk hefur nú tekið breytingum sem gefa vildarvinum tækifæri til að fá meira til baka þegar þeir versla í Bónus og Hagkaup. Með breytingunum fjölgar bæði þeim vörum og vöruflokkum sem gefa Takk krónur til baka og þar með tækifærum vildarvina til að fá meira til ba...