Grilldrottningin

Grilldrottningin Þarf alltaf að vera grill. Uhh JÁ 😎

06/09/2026

Grillað fyrir golfhópinn. ⛳️🔥

05/09/2026

Hot Honey BBQ blómkálsvængir 🔥🥦

Stökkir að utan, mjúkir að innan og velt upp úr hot honey BBQ-sósu. Svo eru þeir bornir fram með heimagerðri gráðostasósu, gulrótum og sellerí.

Þetta er uppskrift sem ég geri aftur og aftur – hvort sem það er sem forréttur, snakk eða aðalrettur

👇 Uppskriftin er í fyrsta kommenti.

foodreels snakk

01/09/2026

Mjúk rif, góð reyking og klístruð whisky-BBQ sósa 🔥

Ég eldaði rifin rólega á óbeinum hita á Kamado Bono og notaði eplavið til að fá gott reykbragð. Síðan var þeim pakkað í álpappír með bjór, smjöri og púðusykri. Í lokin penslaði ég þau með heimagerðri BBQ-sósu með viskíi og lét hana karamelliserast á grillinu.

Útkoman varð nákvæmlega eins og ég vil hafa rifin mín — mjúk, safarík og með góðu reykbrsgði, sætu og sýru. 😍

whiskybbq lowandslow

28/08/2026

Ostafylltar heimagerðar pylsur á grillinu 🔥🌭

Mig langaði að prófa eitthvað aðeins öðruvísi og gerði pylsur úr hakki, kryddaði þær meðal annars með cumin og fyllti með osti.

Ég byrjaði á að grilla þær á óbeinum hita á Kamado Bono og kláraði svo yfir beinum hita.

Með þessu gerði ég kartöflumús, steiktan lauk og currywurst-sósu — og þetta varð algjört comfort food. 😍

Ég veit samt enn ekki alveg… má ég kalla þetta pylsur? 😂

Pylsurnar
500 gr hakk
9 gr salt
1 tsk svartur pipar
2 tsk cumin
1 tsk reykt paprika
1 tsk sætt paprikuduft
2 tsk laukduft
2 tsk hvítlauksduft
1 tsk korianderduft
1/2 tsk múskat
Smá vatn

Currywurst sósa

1,5 dl Tómatsósa
1,5 dl Passata sósa
1 msk hvítlauksduft
2 msk karry
1 tsk reykt paprikka
1 tsk cumin
1 msk Worcesterhire sósa
1 msk eplaedik
Smá cayenne pipar

Soðið saman og smakkað til.

23/08/2026

Black Angus chuckflap á Kamado Bono 🔥🥩

Þetta kjöt kom mér verulega á óvart. Fallega fitusprengt mikið bragð og fullkominn á grillið.

Ég grillaði kjötið á beinum hita á Kamado Bono (52 gráður og hvíla í 10 mínútur)og bar það fram með rauðvínssósu sem ég gerði með lauk, hvítlauk, portobello, timjan, stjörnuanís, rauðvíni og nautasoði — svo kalt smjör í lokin fyrir gljáann. 🤎

Miso gljáinn á sætu kartöflurnar er olivuolia, miso, síróp, hunang, pipar og timian.

Grill BBQ Steak

12/08/2026

🔥 Ég held að þetta séu bestu kjúklingavængir sem ég hef gert.

Stökk húð, safaríkt kjöt og gljái sem klikkar ekki. Þetta var líka í fyrsta skipti sem ég gerði þessa uppskrift á Kamado Bono og hún verður klárlega endurtekin.

🍗 Uppskriftin er komin í fyrsta komment.

👉 Ert þú Team BBQ eða Team Buffalo?

07/08/2026

Getur Kamado Bono bakað alvöru föstudagspizzu? 🍕🔥

Ég verð að viðurkenna að ég bjóst ekki við svona stökkum botni og svona loftmiklum kanti.

Þetta verður klárlega ekki síðasta pizzan sem fer á grillið. 😍

03/08/2026

🥩 Ég ákvað að prófa reverse sear á Kamado Bono… og þetta verður klárlega ekki síðasta skiptið. 🔥

Tomahawk-steikin fékk fyrst að eldast rólega við lágan hita áður en hún fór yfir glóðirnar fyrir loka skorpuna.

Útkoman? Djúp skorpa, safaríkt kjöt og fullkominn kjarnhiti. 🤤

👉 Hefur þú prófað reverse sear ?

30/07/2026

Kamado Bono kom loksins heim til mín… og ég g*t auðvitað ekki beðið með að kveikja upp. 🔥 🔥

Fyrsta eldunin var fiðrilda-kjúklingur og fyrstu kynni eru virkilega góð. Hitastýringin kom mér sérstaklega á óvart og útkoman var safaríkur kjúklingur með fallega stökka húð.

Þetta er bara byrjunin og ég hlakka til að sýna ykkur meira.

27/07/2026

Bao-brauð eru miklu auðveldari en þú heldur! 🤩

Ég fyllti þau með stökkri önd, fersku grænmeti og sósu – algjört nammi. 😍

🥟 Skrifaðu BAO í komment og ég sendi þér uppskriftina sjálfkrafa í skilaboðum. baobuns

Address

Gvendargeisli 44
Reykjavík
113

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grilldrottningin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Grilldrottningin:

Shortcuts

Share