06/09/2026
Útflutningsverðmæti íslenskra eldisafurða nam 40,8 milljörðum ISK fyrstu sjö mánuði ársins og hefur aldrei verið meira á þessu tímabili. Aukningin frá fyrra ári nemur tæpum 36% á föstu gengi. Framleiðsluaukning á laxi, bæði í sjókvíum og á landi, skýrir þróunina að stórum hluta. Heildarframleiðslan gæti nálgast 80 þúsund tonn á árinu og útflutningsverðmætið farið yfir 60 milljarða ISK. Jafnvel er talið mögulegt að 70 milljarða ISK múrinn falli.
Radarinn - forsíða