Hleðsla íþróttadrykkur

Hleðsla íþróttadrykkur Hleðsla er kjörin fyrir alla þá sem treysta á holla og uppbyggilega næringu eftir góða æfingu, langt hlaup eða milli mála. hjá þeim sem þjást af vöðvarýrnun (e.

Hleðsla er prótein- og íþróttadrykkur sem inniheldur prótein og kolvetni til hleðslu og hentar m.a. vel fljótlega eftir æfingar eða keppni, eða á milli mála. Próteinin í Hleðslu eru eingöngu hágæða mysuprótein (whey prótein) sem unnin eru úr íslenskri mjólk. Mysuprótein eru talin henta sérstaklega vel til vöðvauppbyggingar, auk annarra mikilvægra eiginleika. Kolvetnin í Hleðslu koma frá agavesafa (agavesírópi), náttúrulegum mjólkursykri, litlu magni af sterkju og í Hleðslu með jarðarberjum að einhverju leyti kolvetnum úr jarðarberjunum sjálfum. Fyrir hverja er Hleðsla:
Hleðsla hentar öllum sem eru í íþróttum eða stunda aðra hreyfingu. Einnig er möguleiki að drykkurinn henti eldri borgurum, þar sem mysuprótein eru talin geta mögulega aukið vöðvastyrk, t.d. sarcopenia), en vöðvarýrnun er algeng hjá eldri borgurum. Almennt er mælt með að próteinneysla sé í kringum 1 g/kg líkamsþyngdar, og ekki mikið meira en 1,5 g/kg líkamsþyngdar, hjá þeim sem eru mjög virkir í íþróttum og hreyfingu. Þar sem prótein fást víða í fæðu, t.d. í kjöti og fiski, er ekki ástæða til að mæla með meira en sem nemur 1 drykk fyrir fullorðna á dag (tveir drykkir max), og 1 drykk max fyrir börn og unglinga frá ca. 12 ára aldri. Hleðsla er ekki hættuleg yngri börnum en regluleg neysla er óþörf, þar sem þau fá almennt nægt prótein úr venjulegri fæðu og mikil langvarandi próteinneysla getur valdið álagi á nýrun og nýru barna eru minni og óþroskaðri en hjá fullorðnum.

14/09/2026

Það kannast allir við þessa tilfinningu…
Að vera á ferðinni og hungrið heltekur okkur.

Í þessum Hleðslumola frá Helgu Möggu fyllir þú á orkutankinn með einfaldri leið svo þú lendir ekki á vegg í amstri dagsins.

Smá nesti og orkan helst jöfn út daginn.

🚗 Hleðsla með þér á ferðinni.

Laufblöðin sleppa takinu án ótta, litirnir fölna en verða á sama tíma dýpri. Þannig minnir haustið okkur á að horfa á um...
11/09/2026

Laufblöðin sleppa takinu án ótta, litirnir fölna en verða á sama tíma dýpri. Þannig minnir haustið okkur á að horfa á umbreytingar í lífinu með þakklæti, sjá fegurðina í því sem er að líða undir lok og finna styrkinn sem fylgir nýjum tímum. 🍂

31/08/2026

Takk! Takk! Takk! Takk fyrir sólksinsbros, stuð og stemningu í Hleðsluhlaupinu okkar allra! Þessi dagur er án efa hápunktur ársins hjá okkur og við vonum að þið hafið skemmt ykkur jafn vel og við. 🤩
Sjáumst á næsta ári! ❤

Veðurguðirnir eru með okkur í liði líkt og undanfarin ár og við ætlum að slútta hlaupasumrinu með stæl í Hleðsluhlaupinu...
26/08/2026

Veðurguðirnir eru með okkur í liði líkt og undanfarin ár og við ætlum að slútta hlaupasumrinu með stæl í Hleðsluhlaupinu fimmtudaginn 27. ágúst. 😎 Við hlökkum til að sjá þig og þína í gleði og góðu veðri við Víkina í Fossvogi en skráning er í fullum gangi á https://netskraning.is/hledsluhlaupid/ 🌞

24/08/2026

Þú getur alltaf meira en þú heldur…
Þú þarft bara að minna þig á það.

Í þessum Hleðslumola frá Arnari Péturs deilir hann með okkur einföldu ráði sem minnir okkur á að þegar við erum alveg að gefast upp eigum við oft aðeins meira inni.

🏃‍♂️ Hleðsla fyrir hausinn og hlaupin.

Hvort sem þú ert á leið í Reykjavíkurmaraþonið, Hleðsluhlaupið eða stuttan hring í hverfinu mundu að draga andann djúpt ...
21/08/2026

Hvort sem þú ert á leið í Reykjavíkurmaraþonið, Hleðsluhlaupið eða stuttan hring í hverfinu mundu að draga andann djúpt og þakka fyrir að hafa heilsu til að geta það. Hlauptu með hjartanu og hugsaðu um eitt skref í einu - við erum á hliðarlínunni og hvetjum þig áfram. 🖤

Hleðsla í sérmerktum pakkningum er nú á tilboðsverði í næstu verslun! Frábær eftir æfingu, göngutúr, golf, fjallgöngu eð...
12/08/2026

Hleðsla í sérmerktum pakkningum er nú á tilboðsverði í næstu verslun! Frábær eftir æfingu, göngutúr, golf, fjallgöngu eða aðra útivist - hvar sem er og hvenær sem er! 🤩

Hleðsluhlaupið er án efa einn af hápunktum ársins hjá okkur og nú styttist heldur betur í gleðina. Hlaupið fer fram fimm...
11/08/2026

Hleðsluhlaupið er án efa einn af hápunktum ársins hjá okkur og nú styttist heldur betur í gleðina. Hlaupið fer fram fimmtudaginn 27. ágúst og við vonumst til að sjá þig og þína á ráslínunni. 🤩

Ekki bíða með að skrá þig því það seldist upp í fyrra - kíktu á https://netskraning.is/hledsluhlaupid/ og skráðu þig til leiks!

10/08/2026

Þú þarft ekki að vera afreksmanneskja í öllu…
Það er nóg að vita hvar þú skarar fram úr og gefa því pláss.

Í þessum Hleðslumola frá Evu Ruzu hvetur hún okkur til að virkja styrkleikana okkar því þannig blómstrum við og njótum þess sem við gerum.

Finndu þitt svið og þú munt blómstra!

🎯 Hleðsla fyrir daginn þinn.

Sumarið er svo sannarlega ekki búið, en ágúst er genginn í garð og rútínan rétt handan við hornið. Nú er kjörið tækifæri...
09/08/2026

Sumarið er svo sannarlega ekki búið, en ágúst er genginn í garð og rútínan rétt handan við hornið. Nú er kjörið tækifæri til að stilla sig af, koma góðum venjum aftur í gang og finna orkuna fyrir verkefni haustsins. Nýtum síðustu sumardagana vel, hlöðum batteríin og mætum haustinu með góða orku í farteskinu. ❤

Address

Bitruháls 1
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hleðsla íþróttadrykkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hleðsla íþróttadrykkur:

Shortcuts

Share

Category