Bragðheimar

Bragðheimar Hlaðvarp um mat og matargerð fyrir sælkerann, meðljóninn og sjoppuna 🍋🍜🌶️

Nýr þáttur! Endurfæðing og tryggt fæðuöryggi Bragðheima-bína. Líkt og saklausir skógarbirnir eru Bragðheima-bínur nýskri...
27/03/2025

Nýr þáttur! Endurfæðing og tryggt fæðuöryggi Bragðheima-bína. Líkt og saklausir skógarbirnir eru Bragðheima-bínur nýskriðnar úr dvala, með tryggt fæðuöryggi og spennta bragðlauka. Spennandi uppskriftir, ráðleggingar landlæknis, maturinn hans Adda-intro í Berlin, rop-keppni og margt fleira í fyrsta þætti seasons-ins. Sólveig Einarsdóttir Eva Sigrún Guðjónsdóttir

Takk fyrir að hlusta og vera með á líðandi ári. Bragðheima-bínur gáfu út 26 hlaðvarpsþætti sem rötuðu í eyru tugþúsunda ...
23/12/2024

Takk fyrir að hlusta og vera með á líðandi ári. Bragðheima-bínur gáfu út 26 hlaðvarpsþætti sem rötuðu í eyru tugþúsunda 🥳 Við þökkum viðmælendum, kostendum og síðast en ekki síst, ykkur hlustendum fyrir samfylgdina. Við vonum að þið farið vel með bragðlaukana ykkar yfir hátíðirnar sem og sálartetrið. Hver veit nema nýtt ár beri í skauti sér bræddan mexíkóost, stöðu uppfærslu af Þránni og enn einn Haxmundinn, það kemur allt í ljós.

Hátíðarkveðjur,
Eva & Solla ❤
Eva Sigrún Guðjónsdóttir Sólveig Einarsdóttir

Nýr þáttur! Helga Sverrisdóttir er matgæðingur mikill og góðvinkona Bragðheima. Hún er hokin af reynslu og hefur lagt mi...
04/12/2024

Nýr þáttur! Helga Sverrisdóttir er matgæðingur mikill og góðvinkona Bragðheima. Hún er hokin af reynslu og hefur lagt mikinn metnað í að fæða og klæða sitt fólk og gerir það af stakri prýði. Hún ólst upp á miklu menningarheimili þar sem norrænu áhrifin voru ríkjandi. Mikið svakalega var gaman að spjalla við þessa flottu konu og lífskúnstner 🥂👸🏼🐟🫒🧀🍾🦌💥
https://open.spotify.com/episode/0rrzkyGgWD2myaqC5w41WM?si=03488e44b96848ac

NÝR ÞÁTTUR 🎙️ Guðný Ljósbrá - matarleiðsögukona Íslands! Snerpa, gæði og matarleiðsögn í boði framkvæmdastjórans, matgæð...
06/09/2024

NÝR ÞÁTTUR 🎙️ Guðný Ljósbrá - matarleiðsögukona Íslands! Snerpa, gæði og matarleiðsögn í boði framkvæmdastjórans, matgæðingsins og áhrifavaldsins Guðnýjar Ljósbrár. Skemmtilegt spjall við þennan snilling sem hefur verið að gera gott mót á matartokkinu upp á síðkastið 🍋🧀🥙🍸

NÝR ÞÁTTUR 🎙️👸🏻 Sólrún Diego - drottning heimilishaldsins!Við fengum loksins að kynnast Sólrúnu Diego. Hvernig viðheldur...
26/08/2024

NÝR ÞÁTTUR 🎙️👸🏻 Sólrún Diego - drottning heimilishaldsins!
Við fengum loksins að kynnast Sólrúnu Diego. Hvernig viðheldurðu vikumatseðli, signature eftirréttur Sólrúnar, heimilismatur æskunnar, endalaust af Haxmundum og svo margt fleira. Skemmtilegt og einlægt spjall með þessari góðu geit 🍓🥧🍣🍕https://open.spotify.com/episode/2ECmysvoZvygEqGO5llazE?si=085dee0168344a79

Spennandi!
18/08/2024

Spennandi!

„Við erum stolt af því að fá alþjóðlega kvenleiðtoga í matreiðslu í hlutverk gestakokka á MATEY 2024. Þetta árið eru eingöngu kvenkyns gestakokkar sem koma víða að.“

Úúú við fögnum þessu - ef þið hafið ekki gert ykkur ferð á Ramen Momo þá mælum við hiklaust með þeim. Þau bjóða upp á ra...
21/07/2024

Úúú við fögnum þessu - ef þið hafið ekki gert ykkur ferð á Ramen Momo þá mælum við hiklaust með þeim. Þau bjóða upp á ramen og dumplings á heimsmælikvarða!

„Á staðnum í Tryggvagötu erum við bara með pláss fyrir átta manns. Það hefur því verið erfitt fyrir hópa að koma og fólk sem nennir ekki að sitja í barstól þegar það borðar. Á nýja staðnum er meira pláss fyrir fólk til að njóta matarins.“

Vel grilluð og sprungin pólsk pylsa samhliða bragðmiklu og djúsí kartöflusalati er langsamlega besta sumar-tvennan 🌻 Hér...
11/07/2024

Vel grilluð og sprungin pólsk pylsa samhliða bragðmiklu og djúsí kartöflusalati er langsamlega besta sumar-tvennan 🌻 Hér kemur uppskriftin sem við höfðum lofað ykkur 🥔🍋🌶

Kartöflusalat grill-sumarsins 2024 🌦 að hætti Bragðheima!
Fyrir 4-5 meðaljóna 🦁

Salat:
600 gr kartöflur
5-6 egg
1x rauð papríka
1 x rauðlaukur
1 x vorlaukur
5 beikon sneiðar (valkvætt)
Steinselja
Dill (valkvætt)

Sósa:
180 gr sýrður rjómi
3 msk dijon sinnep
2 msk hunang
Sítrónusafi úr hálfri sítrónu
Salt, pipar eða jafnvel bara Aromat og þau krydd sem ykkur huggnast!

Leiðbeiningar:
1. Sjóðið kartöflurnar í 30 mínútur
2. Sjóðið eggin í 8 mínútur
3. Hitið bacon í ofni í ca 10-15 mínútur
4. Ef þið hafið tíma, leyfið kartöflum og eggjum að kólna við stofuhita
5. Skerið papriku og rauðlauk mjög smátt
6. Skerið kartöflur og egg í grófa bita
7. Blandið kartöflum, eggjum, papriku og rauðlauk saman
8. Hellið sósunni yfir
9. Saxið steinselju og vorlauk
10. Stráið steinselju, vorlauk/púrrlauk og 11. beikonkurli yfir salatið

Berið fram með t.d. pólskum pylsum, nautasteik eða svínakjöti!

Address

107
Reykjavík
107

Telephone

+3546614820

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bragðheimar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Bragðheimar:

Shortcuts

Share

Category