Ölgerðin Egill Skallagrímsson

Ölgerðin Egill Skallagrímsson Ölgerðin framleiðir, flytur inn og selur mörg af ástsælustu drykkjar- og matvörumerkjum landsins.

Ölgerðin er eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði. Ölgerðin framleiðir, flytur inn, dreifir og selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri. Aðeins vörur sem eiga þess kost að vera fremstar í sínum flokki eru settar á markað og hverjum birgja sinnt sem hann væri sá eini. Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir. Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar, neytendur, starfsfólk og eigendur.

Viðskiptablaðið var fyrst með fréttirnar um að við hefðum tekið við umboðinu fyrir þýska vínhúsið Schloss Johannisberg. ...
09/09/2026

Viðskiptablaðið var fyrst með fréttirnar um að við hefðum tekið við umboðinu fyrir þýska vínhúsið Schloss Johannisberg. Þetta er gríðarlegur heiður fyrir Ölgerðina og algjör rós í hnappagatið eins og Egill Sigurðsson, vörumerkjastjóri áfengra drykkja segir í meðfylgjandi viðtali.

Ölgerðin hefur tekið við umboði fyrir þýska vínhúsið Schloss Johannisberg, eitt elsta og virtasta Riesling-vínhús heims. Saga vínhússins nær yfir 1.200 ár og þar hefur Riesling-þrúgan verið ræktuð frá árinu 1720. Schloss Johannisberg hefur jafnframt gegnt mikilvægu hlutverki...

03/09/2026
03/09/2026

Að undanförnu hefur þó vakið athygli að nokkrar íslenskar tegundir hafa verið seldar í gömlu dósunum á ný. 👇

Velkomin í hópinn Bryndís!  Bryndís Thelma Jónasdóttir hefur gengið til liðs við Ölgerðina sem vörumerkjastjóri Pepsi á ...
07/07/2026

Velkomin í hópinn Bryndís!

Bryndís Thelma Jónasdóttir hefur gengið til liðs við Ölgerðina sem vörumerkjastjóri Pepsi á Íslandi.

Eftir níu ár í Kaupmannahöfn, þar sem hún lauk námi frá Copenhagen Business School (CBS) og starfaði við alþjóðleg verkefni á sviði stefnumótunar og viðskiptaþróunar, er hún komin heim og tekur nú við ábyrgð á Pepsi-vörumerkjunum hér á landi.
Fram undan er að vinna með Pepsi MAX, söluhæsta gosdrykk Íslands, og 7UP sem leiðir lemon-lime flokkinn á íslenskum markaði.

Við hlökkum til að sjá Bryndísi taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þessara sterku vörumerkja og óskum henni innilega til hamingju með nýja hlutverkið. 💙

Bryndís Thelma Jónasdóttir hefur verið ráðin nýr vörumerkjastjóri Pepsi á Íslandi. Bryndís hefur undanfarin níu ár búið í Kaupmannahöfn bæði við nám og störf. Hún er með bakkalárgráðu úr Viðskiptaskóla Kaupmannahafnar, CBS, í sölu- og markaðsfræði og hefur mikla s...

Nýi próteindrykkurinn okkar, UPP, er kominn í verslanir um allt land. UPP er ferskur próteindrykkur með 20 grömmum af pr...
15/06/2026

Nýi próteindrykkurinn okkar, UPP, er kominn í verslanir um allt land. UPP er ferskur próteindrykkur með 20 grömmum af próteini, án sykurs og kolvetna. Í UPP er sérhæfð blanda af próteinum sem sameinar nýja kynslóð clear whey próteina og kollagenpeptíða. Drykkurinn er afrakstur mikillar þróunarvinnu og er þróaður í samstarfi við World Class. UPP er ferskasta leiðin að próteini!

11/06/2026

Þeir Rubin og Davíð úr Kaleo komu í heimsókn til okkar og hentu í nýja útgáfu af Way Down We Go, sem er eitt af þekktustu lögum hljómsveitarinnar.

Við upptökurnar notaði sveitin aðeins hljóðfæri úr Gulli, þar á meðal sérsmíðaðan Gull-gítar og vel stilltar Gullflöskur, dósir og kassa. Okkar Kaleo. Okkar Way Down We Go!

Aðalfundur Beru hf. verður haldinn miðvikudaginn 13. maí 2026 kl. 16 í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11 í Reykj...
12/05/2026

Aðalfundur Beru hf. verður haldinn miðvikudaginn 13. maí 2026 kl. 16 í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11 í Reykjavík.

Atkvæðagreiðsla fer fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM. Aðgangsupplýsingar verða afhentar á fundarstað frá kl. 15.

Fundarmenn skrá sig inn á fundinn á staðnum og þurfa að framvísa persónuskilríkjum.

Nýr drykkur frá ungum frumkvöðlum Silvía Sigþórsdóttir, Ísak Leó Freysson, Emilía Þóra Ólafsdóttir og Katrín Ósk Sigurða...
17/04/2026

Nýr drykkur frá ungum frumkvöðlum
Silvía Sigþórsdóttir, Ísak Leó Freysson, Emilía Þóra Ólafsdóttir og Katrín Ósk Sigurðardóttirhafa sett fyrsta íslenska koffínbætta trefjadrykkinn á markað í samstarfi við Ölgerðina Egil Skallagrímsson. Hugmyndin kviknaði í áfanganum frumkvöðlafræði í Verzlunarskóla Íslands.
Silvía, Ísak, Emilía og Katrín kynntu hugmyndina fyrir Ölgerðinni í fyrra, á meðan þau voru ennþá nemar í Verzló. Drykkurinn, sem hlaut nafnið eazy, var framleiddur fyrir vörumessu í Smáralind á vegum JA Iceland. Í kjölfarið var ákveðið að setja eazy á almennan markað og fæst drykkurinn nú í Krónunni.
„Við vildum að drykkurinn yrði eins náttúrulegur og hægt er og þess vegna inniheldur eazy ekki hefðbundna gervisætu en stevíu og hrásykur,“ segir Katrín. „Okkur fannst einnig mikilvægt að drykkurinn hefði fleira sem er gott fyrir þig og þess vegna inniheldur eazy trefjar, D-vítamín og sink.“ Eazy er með jarðarberja- og límónubragði og inniheldur 80 mg af koffíni og 5 g af trefjum auk vítamína.
Silvía, Ísak, Emilía og Katrín sáu um allt ferlið frá nafngift til markaðssetningar og hönnuðu einnig umbúðirnar með hjálp auglýsingastofunnar ENNEMM. „Við erum með mjög sterkar skoðanir á útlitinu og höfum fengið frjálsar hendur til þess að gera þetta eftir okkar höfði sem við teljum að höfði vel til markhópsins sem er ungt fólk,“ segir Ísak.
„Við hvetjum öll til að drífa sig út í Krónuna og næla sér í dós af fyrsta trefjabætta koffíndrykknum á Íslandi!“ segir Silvía. Hún þakkar Krónunni fyrir samstarfið. Emilía bætir við:„Við erum líka ótrúlega þakklát fyrir að Ölgerðin hafi tekið svona vel í hugmyndina okkar og að fá tækifæri til að leyfa neytendum að smakka eazy.“
Guðni Þór Sigurjónsson, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Ölgerðinni, segir það frábært að fá flottar hugmyndir frá ungu og öflugu fólki. „Við leggjum mikið upp úr nýsköpun og það hefur verið virkilega gaman að vinna með eazy teyminu.“

Address

Grjóthálsi 7-11
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ölgerðin Egill Skallagrímsson posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ölgerðin Egill Skallagrímsson:

Shortcuts

Share

Category