25/06/2026
Ísey skyr kynnir sumarlegar og seiðandi nýjungar ☀️
Tvær nýjar bragðtegundir koma nú á markað á sama tíma og ættu skyrunnendur um land allt því að setja sig í startholurnar.
Það er einstaklega ánægjulegt að geta boðið upp á tvær spennandi nýjungar nú í sumar en annars vegar er það Ísey skyr Púff með kirsuberjum og súkkulaði og hins vegar Ísey skyr Púff með ástaraldin. Báðar tegundir eiga það sameiginlegt að vera bæði léttar í munni og maga en eins og annað Ísey skyr eru þessar nýjungar laktósalausar.