The Doctor in the Kitchen

The Doctor in the Kitchen Is a doctor during the day and an highly enthusiastic amateur chef at night. I log my kitchen experiences on my blogg! Welcome to the Doctor in the Kitchen!

Fórum á FALLOW í tilefni 27 ára brúðkaupsafmælis. FALLOW hefur slegið í gegn á youtube og ég hef fylgst náið með. Virkil...
11/09/2026

Fórum á FALLOW í tilefni 27 ára brúðkaupsafmælis. FALLOW hefur slegið í gegn á youtube og ég hef fylgst náið með. Virkilega gaman. Fengum maisrif, nautarif, kartöfluköku með eggi og blóðmör, makríl í n’djuja, sveppaparfait og bláskel. Maturinn var frábær, staðurinn pakkaður, kokkarnir í stuði og þjónustan frábær. Mæli með!

Fékk sænska sjálfstætt starfandi lækna í heimsókn. Það var gaman að deila reynslusögum en við deilum mörgu í okkar starf...
05/09/2026

Fékk sænska sjálfstætt starfandi lækna í heimsókn. Það var gaman að deila reynslusögum en við deilum mörgu í okkar starfsumhverfi. Eftir að hafa varið deginum saman buðu þau mér á Fiskifélagið. Við fengum sólkola með kavíar og kaperssósu, fiskibollur, túnfisk, sushi og margt fleira. Maturinn var einstaklega góður og þjónustan til fyrirmyndar!

Taco Tuesday? Hvernig væri best að þýða þetta?
01/09/2026

Taco Tuesday?

Hvernig væri best að þýða þetta?

Ég reyni að elda fisk tvisvar í viku - auðvitað ætti ég að gera það oftar - sérstaklega núna þegar við búum á Íslandi og aðgengi að spriklan...

Fiskur er góður matur! Þessi uppskrift er einkar ljúffeng.
31/08/2026

Fiskur er góður matur! Þessi uppskrift er einkar ljúffeng.

Þessi réttur er ljómandi - hann er fljótlegur, einfaldur og að auki er lítill frágangur þar sem hann er allur eldaður í einni pönnu. Ég h...

Á svona degi þarf eitthvað fæði fyrir sálina. Haustlegur og bragðríkur réttur!
30/08/2026

Á svona degi þarf eitthvað fæði fyrir sálina. Haustlegur og bragðríkur réttur!

Fyrir tveimur vikum skrapp ég í hádegisverð á Fjallkonuna niðri í miðbæ. Átti góðan fund með tveimur kollegum þar sem við fórum yfir verke...

Þetta er einn af mínum uppáhaldsfiskréttum. Ofngrillaðir þorskhnakkar með ólífu, hvítlauks, kapers, sólþurrkuðutómats sm...
27/08/2026

Þetta er einn af mínum uppáhaldsfiskréttum. Ofngrillaðir þorskhnakkar með ólífu, hvítlauks, kapers, sólþurrkuðutómats smjöri. Sælgæti. Prófaði að nota marokkóskt fiskikrydd á fiskinn frá - virkilega gott! Gerði grófa kartöflumús úr nýjum kartöflum, spínati, hvítlauk og steinselju. Salat með! Veisla á virkum degi!

Við fórum á matreiðslunámskeið rétt fyrir utan Ostuni í Puglia í gærkvöldi - lærðum að gera foccacia, orichette pasta og...
19/08/2026

Við fórum á matreiðslunámskeið rétt fyrir utan Ostuni í Puglia í gærkvöldi - lærðum að gera foccacia, orichette pasta og ferskan ost. Svo var spiluð tónlist og okkur kennt að dansa ítalskan tarantella dans - svo var sest niður og snæddur kvöldverður á langborði með 40 manns - allra þjóða kvikindi :) - fullt af dásamlegu antipasti, foccacia auðvitað og orichette með tómatsósu, kökur og limoncello í eftirrétt - nýir vinir og ævintýri - ógleymanlegt kvöld! Alesia Suite

Fórum í bæinn í gærkvöldi og settumst á veitingahús. Gatan er skreytt textanum úr laginu Volare (“Nel blu, dipinto di bl...
18/08/2026

Fórum í bæinn í gærkvöldi og settumst á veitingahús. Gatan er skreytt textanum úr laginu Volare (“Nel blu, dipinto di blu”) eftir söngarann Domineco Modugno en hann er frá Poligniano a mare. Ég fékk mér Spaghetti a’la assassina (morðingapasta) og Snædís fékk sér innbökuð hrísgrón með bláskel. Morðingapasta er frá Bari og er frábrugðið hefðbundnum pastaréttum að spaghettíið sjálft er eldað í chilli og hvítlauksbættri tómatsósu frá grunni. Það karmelliserast í sósunni og brúnast og áferðin verður fjölbreyttari. Primotivo frá Puglia með (4,3 á Vivino - 25 evrur - fjandans ESB) Sælgæti!

Við komum til Polligniano a mare í gær og gistum á krúttlegu hóteli í jaðri bæjarins. Fórum á steikhús í gærkvöldi og fe...
17/08/2026

Við komum til Polligniano a mare í gær og gistum á krúttlegu hóteli í jaðri bæjarins. Fórum á steikhús í gærkvöldi og fengum bombettur (fylltar kjötsneiðar), pylsur, nautasteik og gæddum okkur á negroamaro rauðvíni. Sælgæti!

Pittstopp í Pescara á austurströnd Abruzzo á Ítalíu á leið okkar til Puglia. Kom hingað seinast 2019 en var þá í sveitun...
15/08/2026

Pittstopp í Pescara á austurströnd Abruzzo á Ítalíu á leið okkar til Puglia. Kom hingað seinast 2019 en var þá í sveitunum í kring. Bærin er dáldið skruffí en hérna eru langar hvítar strendur sem fólk sækir í. Snæddum kvöldverð á Taverna 58 og fengum panzanella, timpalo, baunir og grænmeti, nautasteik og langeldað kálfarif. Staðurinn hefur endurtekið verið nefndur í Michelin fyrir elda alvöru Abbrúsískan mat. Ljúffengur sveitamatur!

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when The Doctor in the Kitchen posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share