19/06/2026
Auðveld uppskrift og einstaklega ljúffengt – svo sumarlegt ☀🥭
Uppskrift af Mangóís:
2 mangó
5 dl þeyttur rjómi
3 egg
3,5 msk af Sukrin Gold
Skerðu mangóin og skafaðu aldinkjötið út. Maukaðu svo í blandara. Þeyttu rjómann þar til hann verður léttur og loftkenndur. Þeyttu eggin og bættu Sukrin Gold út í. Blandaðu síðan öllu saman og skelltu inn í frysti.
Til að losna við ískristalla í ísnum er gott að hræra í blöndunni á klukkutíma fresti fyrstu fjóra tímana.
Svo er alltaf hægt að skipta út mangóinu fyrir aðra sæta ávexti eða ber eftir smekk 🍓🫐
Uppskrift fengin hér: sukrin.com/no/oppskrifter/mangoiskrem