Kræsingar frú Mogensen

Kræsingar frú Mogensen Tilbúnar kræsingar fyrir fólk sem vill hollan og góðan mat, matreiddan af ást og virðingu vi? Borðaðu mig núna! Hugmyndafræði Helgu er einföld. Dásamlegt!

„Mig hefur lengi dreymt um að auðveldt fólki aðgang að ljúffengum tilbúnum réttum sem einfalt er að nálgast um leið og þú verslar inn. Það eina sem þú þarft að gera er að hita réttina upp! Fyrsta flokks hráefni, sanngjarnt verð og auðvelt að nálgast í helstu verslunum höfuðborgarsvæðisins!"
- Helga Mogensen, eigandi. Hún vill bjóða landsmönnum og -konum upp á hollan og hreinan sælkeramat, sem er m

atreiddur af ást og virðingu við neytandann. Engin geymsluefni eða önnur aukaefni. Hvað er á boðstólum? Indverski grænmetisrétturinn - Glúteinlaus og vegan
Kemur i plastglasi eins og allir aðrir réttir er handhægur og afar ljúffengur. Mildur en kitlar bragðlaukana þægilega. Fullkomin máltíð með hýðishrísgrjónum. Gott eitt og sér en enn betra með fersku salati og góðu brauði og kryddsultu. Innihaldið er rauðar linsubaunir, laukur, gulrætur, hvítlaukur og spínat. Grunnurinn er kókósmjólk, krydduð með indverskum kryddum, salti og cayennapipar. Tælenski kjúklingabaunarétturinn - Glúteinlaus og vegan
Þessi réttur inniheldur kjúklingabaunir, hýðishrísgrjón, lauk, sætar kartöflur, gulrætur, kókósmjólk og himnesk krydd og hýðishrísgrjón. Bragðmikill en það gerir cayennapiparinn en samt allra. Góður einn og sér en enn betri með grænu salati og góðu brauði. Kúbverski Grænmetisrétturinn - Glúteinlaus
Enn ein dásemdin með mungbaunum og góðu grænmeti. Þessi grænmetisréttur er sá bragðmesti jafnvel flokkast undir medíum sterkur! Mungbaunir eru með hnetukeim og passa vel með þessum kryddum og grænmeti. Tilbúinn með hýðishrísgrjónum, einfalt að hita upp og borða i vinnu eða heimavið. Til að mynda jafnvægi með kryddunum er hann sætaður með smá hunangi sem setur punktinn yfir i-ið! Grísk gulrótarsúpa - Glúteinlaus
Suðræn og seiðani, grunnurinn eru gulrætur og laukur, fyllt með tómatsósu og kókós ásamt suðrænum kryddum. Í dósinni er 500 ml og því góð fyrir tvo. Prófaðu súpuna með soðnum eggjum eða krydduðum brauðteningum. Grænmetislasagne
Hérna er grunnurinn gott grænmeti, spínat og rauðar linsur sem gefur próteinið ásamt mossarellaosti og kotasælu. Kryddin eru mild en samt kraftmikil og hentar flest öllum. Gott með hvítlauksbrauði og fersku salati. Magnið er 500 gr og því gott fyrir tvo! Umbúðir eru umhversvænar og fara því í endurvinnslu. Réttir Helgu eru tilvaldir til þess að grípa með sér í hádeginu eða þegar kemur að því að næla sér í gómsætan kvöldverð eftir annasaman dag. Helga leggur mikið upp úr samspili ólíkra hráefna sem kitla bragðlaukana og leikur sér að samsetningu og útliti til að gera matarstundina ánægjulega. Umbúðirnar þola örbylgjuofn en eins er ekkert auðveldara en að skella þeim á pönnuna og hita. Um Helgu Mogensen:

Á síðustu þrjátíu árum hefur Helga Mogensen tekið þátt í uppbyggingu margra helstu grænmetisveitingastaða landsins og deilt reynslu sinni og þekkingu í grænmetismatargerð, landanum til ánægju og heilsubótar. Elskum umhverfið! Allar umbúðirnar eru endurvinnanlegar og hvetur Helga viðskiptavini sína til að flokka umbúðir eftir notkun.

Address

Reykjavík

Telephone

+3548638109

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kræsingar frú Mogensen posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Kræsingar frú Mogensen:

Share