07/08/2026
🇮🇸
Tímamót hjá Íshafi 67 Eimingu & Segli 67 Brugghúsi. 🥃🌾
Nú höfum við fyllt fyrstu eikartunnurnar af eðalvökva sem með tímanum mun verða að íslensku viskí.
Grunnurinn er 100% íslenskt bygg, ræktað hér fyrir norðan, og hvert skref í ferlinu er unnið af metnaði og virðingu fyrir hráefninu.
Það er sérstök tilfinning að sjá tunnur enn á ný fylla Siglufjörð – þó með allt öðru innihaldi en áður. Þar sem síldin fyllti tunnurnar á árum áður, geyma þær nú framtíð íslenskrar viskígerðar.
Þetta er aðeins upphafið. Á komandi mánuðum og árum munum við halda áfram að þróa þessa vöru af metnaði, þolinmæði og ástríðu, með það að markmiði að skapa einstakt íslenskt viskí sem endurspeglar uppruna sinn og íslenskt handverk.
Að lokum viljum við færa vinum okkar hjá Klauf í Eyjafjarðarsveit kærar þakkir fyrir frábært samstarf. Við hlökkum til að halda þessari vegferð áfram með ykkur og þróa íslenska viskígerð saman á komandi árum.
Skál fyrir því sem fram undan er! 🥃
⸻
🇬🇧
A milestone at Íshaf 67 Distillery & Segull 67 Brewery. 🥃🌾
Now we have filled our first oak barrels with a spirit that will one day become Icelandic wh**ky.
It’s made from 100% Icelandic barley, grown here in North Iceland, and every step of the process reflects our passion for quality and respect for local ingredients.
There’s something special about seeing barrels once again filling Siglufjörður—this time with a very different kind of treasure. Where herring once filled the barrels that built this town, they now hold the future of Icelandic wh**ky.
This is just the beginning. Over the coming months and years, we will continue refining and developing this product with dedication, patience, and passion, with the goal of creating a truly distinctive Icelandic wh**ky that reflects its Icelandic origin and craftsmanship.
Finally, we would like to extend our sincere thanks to our friends at Klauf in Eyjafjarðarsveit for their valued partnership. We look forward to continuing this journey together and helping shape the future of Icelandic wh**ky.
Here’s to the journey ahead! 🥃
⸻
**ky